miðvikudagur, desember 13, 2006

 

Jólin koma...

Og þau eru bara velkomin til okkar... ;) við erum ekkert að stressa okkur á því að Kringlan sé full af fólki sem verslar af sér vitið... við erum heldur ekkert að stressa okkur á því að vera jólastressuð... aftur ætlum við Súni að halda jólin heilög heima hjá okkur, nema núna fjölgar aðeins gestum hjá okkur... Jens pabbi súna, Björg systir hans og hennar strákur ætla að vera hjá okkur jólahelgina. Auk Brynhildar mömmu Árnýjar og Hákonar bróðir. Úff.. þetta er kannski ástæða til að byrja að stressa sig...
Húsmóðirin er búin að auka við sig vinnnu í vínbúðinni og nú fer jólaösin að byrja í ölinu... ég stressast bara öll upp við að hugsa um komandi viku... úff ég er farin að þrífa...
Súni tekur þessu öllu með ró og raular jólalög á milli þess sem hann lætur jólastressið líða úr sér. Hann má líka drekka jólaöl og glögg....

miðvikudagur, desember 06, 2006

 

Nýtt og ferskt blogg


Jólin að nálgast í allri sinni dýrð. Held bara að það sé óhætt að segja að við séum öll á heimilinu jólaálfar, hvernig er annað hægt með svona stubb sem er að upplifa þetta allt og hann er eitt bros alla daga! Við fórum til Reykjavíkur um seinustu helgi og jóluðum okkur aðeins upp þar, stutt stopp og létum okkur nægja að heimsækja nýjasta meðlimin í vinahópnum ;) Kiddýjar og Tóta sonur, og svo var okkur boðið í mat til Ellenar og Svenna. Dýrindis læri sem rann vel niður, svona ferðir vilja oft loða við óhóflega mikinn skyndimat, því frábært að vera boðið svona í mat. Gistum hjá Hönnu Rósu, Súni reyndar skrapp aðeins á bílasölubíltúr á föstudagskvöldið. Bíltúrinn endaði kl fimm um nóttina.... hressandi bíltúr það ;)
Húsmóðirin á heimilinu er komin í jólafrí frá skólanum, og er orðin 3/4 félagsliði, og er með stækkandi bumbu, inn í henni er barn að stækka... ekki bara matarástin hér á ferð!!

Jón Darri hitti Jólasvein um helgina, var svona ekki alveg viss þegar jólinn tók hann og lét hann setjast hjá sér, en var mikið glaður og skoðar myndina mikið.


This page is powered by Blogger. Isn't yours?